Heimsóknir

Er svo ótrúlega ánægður með allar heimsóknirnar sem eru að koma inn á síðuna.

Kemur samt mest megnis í gegnum leitarorð sem tengjast Google Nexus One símanum.

Er annars búinn að vera frekar busy, búinn að endurskipuleggja heimasíðu Ráðgjafans og styrkja hann til muna.

Kíkið endilega á hann og bjallið á mig :)

Posted in Blogg | Leave a comment

Twitter

OK ég hef oft nefnt og oft skrifað um örbloggs síðuna Twitter. Ekkert nýtt undir sólinni þar, en fyrir tæpum hálfum mánuði eða svo fékk ég skilaboð frá skipuleggjanda Reykjavík Twestival sem var haldið 25.mars síðastliðinn. Hann var að biðja mig að fjalla aðeins um notkun mína á Twitter og annað tengt því.

Ég því miður hafði ekki tíma til þess að sinna því en í framhaldinu hef ég verið að velta þessu fyrir mér mikið. Annarsvegar hvernig ég hef notað Twitter og svo hinsvegar hvað ég hef grætt á því.

Kannski einfaldast að byrja á hvað ég hef grætt.

Í gegnum Twitter hef ég myndað mikið af samböndum við ólíklegasta fólk á hinum ólíklegustu stöðum sem ég hef tengst í gegnum sameiginleg áhugamál eða umræðuefni sem hafa komið upp í gegnum Twitter.

Án Twitter held ég að ég hefði aldrei fært mig jafnmikið út í Social Media líkt og nú er reyndin og þá aðallega í gegnum Ráðgjafann. Ég efast um að ég væri að skrifa á þessa síðu ef ekki væri fyrir Twitter. Síðan væri ekki hýst þar sem hún er núna ef ekki væri fyrir ráðleggingar í gegnum Twitter og svo fram eftir götunum.

En hvernig er ég að nýta Twitter núna?

Ég eins og margir aðrir er að nota kerfið Tweetdeck til þess að hugsa um mína 2 Twitter aðganga, bæði Tweeta þaðan út en einnig les það sem kemur í gegnum Twitter strauminn.

Þetta hefur mikið breytt minni nethegðun, núna er ég kominn með fréttastraum beint af helstu netmiðlum landsins ásamt fréttum frá hinum ýmsu Social media og græju síðum. Þetta hefur breytt alfarið minni nethegðun.

Eftir að þú ert búinn að lesa í gegnum þetta þá ættirðu kannski að spyrja þig, afhverju er ég ekki á Twitter?

Posted in Blogg | Tagged , , , | Leave a comment

Bíó

Ég er ekki manna duglegastur að fara í bíó, get varla kallað mig duglegan sjá neitt nema barnamyndir í bíó.

En ég hinsvegar kynni mér myndir og fylgist með myndum sem eru að koma, velti fyrir mér efnistökum þeirra og reyni að draga mat á þær hvort þær höfði til mín eða ekki.

Avatar td höfðaði ekkert til mín en myndin Where the wild things are höfðaði svakalega til mín enda æðisleg mynd.

En hér að neðan eru þær 2 myndir sem ég finn mig knúinn að verða sjá á árinu 2010.

Endilega deildu með mér þeim myndum sem þú ert hvað spennt/ur fyrir.


Posted in Blogg, Kvikmyndir | Tagged , , , | Leave a comment

Smá færsla fyrir svefninn

Kominn tími á smá færslu.

Það gengur allt super vel með litlu dömuna mína og öllum heilsast mjög vel.

Ráðgjafinn hefur það flott, meira segja von á nýjum penna þar inn til að skrifa á síðuna sem er alveg extra spennandi.

Nú er bara nóg að gera og næsta helgi undirlögð af flottri sýningu í Smáralind, Netið 2010. Hvet alla til að kíkja og helst hringja í mig þegar þið eruð á staðnum, aldrei að vita nema maður verði þar líka.

Enda þennan stutta pistil á trailer dagsins, Iron Man 2.

Posted in Blogg, Myndband | Tagged , , , , | Leave a comment

The good heart

Jæja meistari Dagur Kári kominn með nýja mynd og ég verð að viðurkenna að þessi mynd lítur rosalega vel út.

Dæmið bara um það sjálf.

Posted in Blogg, Myndband | Tagged , , | Leave a comment

Wall Street 2

Ekki leiðinlegt að byrja vinnuvikuna á trailernum fyrir Wall Street 2. Oliver Stone klikkar ekki.

Posted in Myndband | Tagged , , | Leave a comment

Ný síða

Undanfarnar færslur hef ég verið að færast meira í að fjalla um markaðstengd málefni á þessari síðu.

Það var ekki pælingin með þessari síðu.

Þess vegna hef ég opnað nýja síðu, Ráðgjafann - radgjof.thorarinnh.is.

Síðan er hugsuð sem upplýsingaveita og vettvangur fyrir einstaklinga og fyrirtæki til þess að leita sér upplýsinga er snertir markaðssetningu á netinu. Á síðunni er líka einskonar gulalína yfir fagfólk sem er einnig í lausamennsku (freelance).

Endilega gerist aðdáendur Ráðgjafans á Facebook eða eltið hann á Twitter.

Ef þið hafið áhuga á að vera gestapenna á síðunni hafið þá endilega samband, síðan er hugsuð sem vettvangur fyrir mismunandi skoðanir.

Posted in Blogg | Tagged , , , | Leave a comment