Social media “Fíkill”

Hér hægra megin á síðunni er “Follow me” hnappur, á honum sjáið þið hvar þið getið fylgst með mér og þeim gárum sem ég mynda í netheimum.

Viðurkenni að ég er pínu fíkill í þetta, fannst ég verða að vera inni á Linked-In þrátt fyrir að hafa ekki nýtt mér fyllilega alla möguleika þess.

Er mjög virkur á Facebook og Twitter, í framhaldi af því er hægt að fylgjast með mér á Friendfeed þar sem ég samtvinna þessum tveimur samskiptarásum í eina.

Plaxo er eitthvað sem ég er líka aðeins að fikta mig áfram í að nota, hef bara aðeins krafsað á yfirborðið þar.
Ég er líka með aðgang á Youtube til þess að halda utan um það sem ég skoða þar og til þess að geta verið í áskrift að þáttunum “The Guild“.

Að öllu þessu ógleymdu er ég líka inni á Gogoyoko þar sem ég nýt þess að hlusta og kaupa tónlist eins og ég veit ekki hvað. “Áfram íslenskt hugvit”

Þetta virkar mikið, er það samt ekki. En aðal ástæðan fyrir þessu er að dreifa sér á sem flesta staði, koma sér sem mest á framfæri og jafnvel að vera aðeins á undan, ég kom seint inn í Facebook, var með Twitter aðgang sem ég nýtti ekkert í hálft ár áður en ég uppgvötaði alla möguleika þess. “Stay ahead of the curve” ef svo mætti að orði komast.

En sem svona niðurlag, endilega ef þið eruð að nýta þessa miðla sem eru í “follow me” flipanum, þá endilega smellið og tengjumst.

Posted in Blogg | Tagged , , , , , , | Leave a comment

Myndband

Fannst það viðeigandi að fyrsta færslan væri með myndbandi sem ég hef séð of oft. Trailerinn úr nýju Spike Jonze myndinni.

Myndin er byggð á bók Maurice Sendak, Where the wild things are, og er um drenginn Jack og hugarheim sem hann skapar og hverfur til þegar móðir hans sendir hann í svangan í rúmið.

Posted in Blogg, Myndband | Tagged , , | 1 Comment