Loksins sem maður skrifar eitthvað hingað inn.
Sá myndina Inglorious Basterds….hef svo sem ekkert mikið um þá mynd að segja. Klassískur Tarantino. Mynd uppfull af tilvitnunum í Spaghetti vestrana frá Leoni.
Þar sem ég tel mig samsekan auglýsingasamfélaginu þá get ég ekki kvartað mikið en að sitja í 15 mín og horfa á auglýsingar. Sem ég borgaði fyrir….pirrandi en segi ekki meir.
En þrátt fyrir að hafa verið ágætlega spenntur fyrir Tarantino þá er ég margfalt spenntari fyrir myndinni “9″ sem er byggð á stuttmyndinni sem ég póstaði hér að neðan…Mynd sem á bara eftir að looka vel.
En fyrir utan bíó þá er ég að vinna að rosalega spennandi verkefni sem Íslenskir netnotendur geta notið vonandi fyrir áramótin….kemur í ljós !!!






