Jæja, það kom að því að ég fékk mér Android síma.
Fyrir valinu varð Samsung Galaxy Spica.
Ódýr og góður sími sem keyrir á Android 2,1 stýrikerfinu og eru það helstu rökin fyrir því af hverju ég valdi sérstaklega þennan síma fram yfir aðra Android síma sem eru til sölu á landinu.
Annars bara sumarfrí og afslöppun að bresta á eftir ansi hreint stórskemmtilegar undanfarnar vikur þar sem ég hef verið að koma mér inn í nýtt starf og aðlagast því held ég bara hressilega.
Verð að enda þetta á myndbandi að sjálfsögðu. Að þessu sinni er það trailer fyrir myndina Valhalla Rising með hinum frábæra leikara Mads Mikkelsen…Enjoy






