Í vikunni var birt viðtal við Andrés Jónsson almannatengil þar sem hann var spurður um Twitter. Gott viðtal þar sem Andrés fór lítilleg í það hvernig þetta væri. Mér fannst hinsvegar vantar almennilega útskýringu.
[ad#Blog post ad]
Hvað er Twitter?
Ekki vona að fólk spyrji. Twitter er í eðli sínu örblogg, takmarkað við 140 stafi. Á Twitter vingast maður ekki við neinn, gerist ekki aðdáandi eða fer í hópa. Maður annars vegar fylgir einhverjum (follower) eða einhverjir elta mann sjálfan (followed). Engin tenging er þarna á milli, þú þarft ekki að fylgja þeim sem fylgir þig.
Það sem þú skrifar er einungis sýnilegt þeim sem eru að fylgja þér, ekki þeim sem þú fylgir. Hinsvegar geta þeir sem fylgja þér sent það sem þú skrifar áfram, kallað ReTweet. Þá í raun eru þín skilaboð tekin, merkt þér og dreift í gegnum boðleið þessa tiltekna fylgjanda.
Munurinn á Facebook og Twitter fyrir utan takmörkun á stöfum er sá að á Facebook ertu að styrkja sambönd sem eru oftast þegar til staðar, á Twitter stofnar maður til nýrra sambanda í gegnum sameiginlegt áhugamál.
[ad#Blog post ad]
Ég nota Twitter mikið til þess að fylgjast með því sem er að gerast út í heimi, er með erlendar fréttaveitur tengdar inn ásamt því að þær helstu síður sem ég heimsæki reglulega bjóða upp á að deila RSS straumnum sínum beint á Twitter.
Í gegnum Twitter hef ég myndað tengsl við helling af frábæru fólki sem deila með mér áhuga á markaðsfræði, social media og svo mörgu öðru. Ég nálgast meirihlutann af þeim greinum sem ég les í gegnum Twitter.
Ég hvet alla til þess að prófa, amk til þess eins að skrifa hinu hefðbundnu skilaboð “Skil ekkert hvernig þetta Twitter virkar”. Ég er hinsvegar alltaf tilbúinn að hjálpa og endilega fylgið mér ef þið hættið ykkur inn á Twitter.
Endilega ef þið eruð á Twitter smellið þá notendanafninu hérna í comment að neðan.
Læt fylgja með útskýringar myndband







Pingback: Twitter (UTN) « Þankar